Ninja CREAMi leiðbeiningar
Rétt notkun á Ninja Creami og algeng mistök sem þarf að forðast
🧊 Frystu ísboxið upprétt á sléttu yfirborði
Gakktu úr skugga um að yfirborð ísblöndunnar sé slétt áður en boxið fer í frysti.
- Ef ísboxin eru sett í frystinn verða þau að standa á sléttum fleti svo yfirborðið haldist slétt.
- Ef efnið frýs hallandi í boxinu getur það skemmt vélina.
❄️Leyfðu ísboxinu að þiðna áður en það er sett í vélina
Láttu ísboxið standa við stofuhita í 10–15 mínútur áður en þú setur það í vélina.
Lengd þiðnunar tíma ræðst af því hversu frosið boxið er og hversu mikið er í því.
Ef ísbox er sett beint í vélina án þess að þau þiðni getur það skemmt vélina;
- ❌ blöðin geta festst í íssnum eða beyglast inn að hliðum boxins
- ❌ skemmt þau með því að rispa hliðarnar og skrapa af húðina.
🥄 Sléttu yfirborðið áður en fryst er eða unnið aftur
Þegar vökvinn frýs eykst rúmmál hans og þá geta komið smá bungur í yfirborðið.
- ✔️Þá er best að skafa bungur burt svo yfriborðið verður slétt
- ✔️þá er öruggt að setja boxið í vélina.
🧀 Ef þykk hráefni eru ekki nógu vel hrærð, verður ísinn kekkjóttur
Ef ísinn virðist vera í bitum og óunninn þarf að hræra hann betur saman, píska eða nota töfrasprota á hann áður en hann er settur í frytinn.
T.d. ef þú notar rjómaost þá er gott að:
- hita rjómaostinn í 30 sec áður en honum er blandað í hráefni boxins.
- Blandaðu honum fyrst með sykri og síðan öðrum vökva
- Þeyttu blönduna vel áður en hún fer í frysti
🔁 Ef ísinn verðuri þurr eins og hann molni
- ✔️Sléttu aftur yfirborðið, settu boxið aftur í véiln og ýttu á Respinn takkann.
- ✔️Stundum þarf að ýta á Respinn takkan oftar en einu sinni.
Ef það virkar ekki er hægt að setja smá meiri vökva í boxið og ýta á Respinn,
🌡️ Ísinn gæti líka verið of kaldur þá er gott að láta hann þiðna aðeins lengur.
🚫 ATHUGIÐ:
- ❌ EKKI setja frosin ber eða klaka í vélina
- ❌ Fylltu EKKI ísskálarnar umfram MAX FILL merkinguna