1. Hjálparsíða
  2. Thomson leiðbeiningar

Thomson | Ísetning á SIM,- og SD-korti

Hægt er að setja SIM kort í Thomson vélarnar til að fá 4G samband sem og SD kort til þess að auka við gagnapláss í tölvunni!  

 

1. Á botni tölvunnar er hleri sem hægt er að opna með því að losa eina Philips skrúfu.

❕  Gott er að nota PH00 philips  skrúfjárn eða bita til að losa skrúfuna.  ❕

 bak

 

2. Þegar hlerinn hefur verið opnaður þá má sjá 2 raufar, Sim-kortaraufin er til vinstri á myndinni og SD-kortaraufin til hægri. 

Thomson 2

 

3. Til að opna raufarnar er gráa járninu framan á raufinni ýtt niður, þá losnar það og hægt er að opna raufina líkt og á myndinni hér að neðan. 

IMG20221031123042

 

4. Kortunum er því komið í raufarnar eins og á myndinni hér að neðan. 

IMG_20221031_123607

 

5. Að lokum er járnfestingunni ofan á raufinni komið aftur fyrir og henni er rennt upp til að festa kortið. 

IMG20221031123751

Að lokum er botnhleranum komið fyrir á sinn stað og skrúfunni komið í á ný. 

Eftir það ættu kortin að koma fram í stýrikerfi.

Í sumum tilfellum þarf að setja inn APN stillingar fyrir sim kort, ef þær koma ekki sjálfkrafa þarf að handstimpla inn APN stillingar viðeigandi símfyrirtækis.

Hægt er að nálgast leiðbeiningar á uppsetningu á APN með því að smella á hlekkinn hér að neðan: 

Uppsetning á farsímaneti í Windows 10