Virkja Legimi á Pocketbook lesbrettum
📘 Leiðarvísir
Hvernig á að virkja Legimi á PocketBook rafbóka lesbrettum
✅ Skilyrði fyrir að getað virkjað Legimi er að hafa:
Wi-Fi tengingu, Legimi aðgang með virka áskrift og PocketBook lesbretti sem er skráð.
🔄 Skref 1
Uppfærsla vélbúnaðar í PocketBook
- Til að geta uppfært vélbúnaðinn byrjarðu að tengja PocketBook lesbrettið við Wi-Fi.
- Farðu síðan í Stillingar → Um tækið/Hugbúnaður.
- Ýttu á Athuga með uppfærslur, ef ný útgáfa er í boði mun hún hlaðast inn og fara í sjálvirka uppsetningu. Tækið endurræsir sig að uppfærslu lokinni.
⚠️ Gakktu úr skugga um að rafhlaðan sé með minnst 30% hleðslu áður en þú uppfærir.
📲 Skref 2
Til að endurræsa PocketBook:
- Farðu í Stillingar → Viðhald → Endurstilla í verksmiðjustillingar.
- AÐVÖRUN: Þessi aðgerð eyðir öllum gögnum (t.d. bókum, stillingum og persónulegum upplýsingum) af tækinu.
- Legimi og EmpikGO táknin birtast á forsíðu.
📥 Skref 3
Setja upp & virkja Legimi
Eftir vélbúnaðaruppfærslu:
- Legimi táknið birtast á heimaskjánum.
- Opnaðu Legimi appið.
- Skráðu þig inn með Legimi aðgangsupplýsingum.
- Appið byrjar að samstilla bókasafnið þitt.