📱Wonlex - Uppsetning á Appi
⚙️Leiðbeiningar vegna uppsetningu á Appi í snjallsíma foreldra.
- ⚠️Verið viss um að vera búin að virkja úrið sjálft á Bls. 1 áður en lengra er haldið!
- 📲 Sækja þarf appið Wonlex á Google Play / iOS App Store og setja upp í síma foreldra.
- 🔓 Opna app og velja þarf Register til að stofna nýjan aðgang
- 🆔 Watch id/License: Skanna inn QR kóða sem er á umbúðum úrsins.
- 📧 Account: Netfangið þitt
- 🧸 Nickname: Gælunafn notanda úrsins (t.d. Nonni)
- 🔑 Password: 6-12 stafa lykilorð að Wonlex aðgang
- 🔁 R_Password: Staðfesta (endurtaka) lykilorð
- 🌍 Athugið að stillt er á Region: „Europe and Africa“
- 🆔 Watch id/License: Skanna inn QR kóða sem er á umbúðum úrsins.
- ➕ Ef það á að bæta við öðru úri þá er farið inn í 👤 „Me“ (Avatar uppi til vinstri) flipann, 📃“ Device List“ og ➕ „Add device“.
- 📱Ef það á að bæta við öðrum síma nærðu í appið í þeim síma og skráir þig inn með sama notendanafni og lykilorði.
- ☎️Í stillingum ferð þú svo í símaskránna (Phone book) og bætir inn tengiliðum sem barnið getur hringt í. Hægt er að velja allt að 15 tengiliði. Ef hringt er í úrið úr númeri sem er ekki skráð í símaskránna lokar úrið sjálfkrafa á símtalið.
Spurt og svarað:
📍 Appið sýnir ónákvæma staðsetningu:
❗Ath. úrið þarf að vera úti og sjá gervihnetti til að gefa nákvæmustu GPS staðsetninguna. Ef úrið sér enga eða fáa gervihnetti t.d. úrið er statt inn í miðju húsi þá getur komið röng staðsetning.
🔌 Appið segir „Device offline“ eða birtir ennþá ranga staðsetningu:
SMS kóði: pw,LYKILORÐ,ip,52.28.132.157,8001# biður úr um uppfærslu á staðsetningarupplýsingum.
🆔 Ég týndi ID númerinu (QR kóðanum):
Hægt að sjá afrit af því í App flipanum í úrinu sjálfu eða með SMS kóða: pw,LYKILORÐ,ts#
🚫 Ég vil ekki að úrið geti ekki tengst við önnur eins krakkasnjallúr (Vinaúr):
Slökkt á eiginleika: pw,LYKILORÐ,makefriend,0# Kveikt á eiginleika: pw,LYKILORÐ,makefriend,1#
🕰️Ég vil að úrið trufli ekki á skólatíma:
Þá getur þú stillt úrið á „Do Not Disturb“ með appinu sem lokar þá fyrir alla virkni aðra en að úrið sýni tíma. Þú velur tíma sem að þessi stilling á að vera virk. Athugið að það þarf að stilla tímann hvern dag (00:01-23:59).
Til að tíminn nái frá 20:00 to 08:00, þarf að gera tvö tímabil:
- 20:00–23:59
- 00:01–08:00
📶 Hvernig áskrift þarf ég fyrir úrið?:
Úrið notar NANO SIM kort með lágmarks gagnamagni, 1GB á mánuði er nóg, fyrir staðsetningarupplýsingar og almenna notkun. Einnig þarf inneign fyrir talsamband ef áskriftarleið rukkar fyrir símtöl og SMS.