1. Hjálparsíða
  2. Wonlex leiðbeiningar

Wonlex - Uppsetning á Appi

Leiðbeiningar vegna uppsetningu á Appi í snjallsíma foreldra.

1. Verið viss um að vera búin að virkja úrið sjálft á Bls. 1 áður en lengra er haldið!

2. Sækja þarf appið Wonlex á Google Play / iOS App Store og setja upp í síma foreldra.

3. Opna app og velja þarf Register til að stofna nýjan aðgang
          a.Watch id/License: Skanna inn QR kóða sem má finna á umbúðum úrsins o.e. á úrinu sjálfu.

        b. Account: Netfangið þitt

        c. Nickname: Gælunafn notanda úrsins (t.d. Nonni)

        d. Password: 6-12 stafa lykilorð að Wonlex aðgang

        e. R_Password: Staðfesta (endurtaka) lykilorð

        f. Athugið að stillt er á Region: „Europe and Africa“

4. Ef það á að bæta við öðru úri þá er farið inn í „Me“ (Avatar uppi til vinstri) flipann, “ Device List“ og „Add device“.

5. Ef það á að bæta við öðrum síma nærðu í appið í þeim síma og skráir þig inn með sama notendanafni og lykilorði.

6. Í stillingum ferð þú svo í símaskránna (Phone book) og bætir inn tengiliðum sem barnið getur hringt í. Hægt er að velja allt að 15 tengiliði. Ef hringt er í úrið úr númeri sem er ekki skráð í símaskránna lokar úrið sjálfkrafa á símtalið.

Spurt og svarað:

Appið sýnir ónákvæma staðsetningu:

Ath. úrið þarf að vera úti og sjá gervihnetti til að gefa nákvæmustu GPS staðsetninguna. Ef úrið sér enga eða fáa gervihnetti t.d. úrið er statt inn í miðju húsi þá getur komið röng staðsetning.

 

Appið segir „Device offline“ eða birtir ennþá ranga staðsetningu:

SMS kóði: pw,LYKILORÐ,ip,52.28.132.157,8001# biður úr um uppfærslu á staðsetningarupplýsingum.

 

Ég týndi ID númerinu (QR kóðanum):

Hægt að sjá afrit af því í App flipanum í úrinu sjálfu eða með SMS kóða: pw,LYKILORÐ,ts#

 

Ég vil ekki að úrið geti ekki tengst við önnur eins krakkasnjallúr (Vinaúr):

Slökkt á eiginleika: pw,LYKILORÐ,makefriend,0# ---- Kveikt á eiginleika: pw,LYKILORÐ,makefriend,1#

 

Ég vil að úrið trufli ekki á skólatíma:

Þá getur þú stillt úrið á „Do Not Disturb“ með appinu sem lokar þá fyrir alla virkni aðra en að úrið sýni tíma. Þú velur tíma sem að þessi stilling á að vera virk. Athugið að það þarf að stilla tímann hvern dag (00:01-23:59) T.d. þarf að gera 2 tíma 20:00-23:59 og 00:01-08:00 þannig að tíminn nái frá 20:00 til 08:00.

 

Hvernig áskrift þarf ég fyrir úrið?:                                                                                  Úrið notar SIM kort með lágmarks gagnamagni (1GB á mánuði er nóg) fyrir staðsetningarupplýsingar og almenna notkun. Einnig þarf inneign fyrir talsamband ef áskriftarleið rukkar fyrir símtöl og SMS.